Hvað er tencel og modal?
Tencel™ er eitt sjálfbærasta efni í heimi. Það er tegund af lyocell framleitt af austurríska fyrirtækinu, Lenzing AG™ og kemur frá Eucalyptus trjám, endurnýjanlegri náttúruauðlind.
Staðreyndir
Trén eru ræktuð í sjálbærum FSC votttuðum skógum
Framleiðsluferlið er “closed loop” hringrás - endurvinna 99% af efnunum sem kemur í veg fyrir losun skaðlegrar efna út í andrúmsloftið
Tencel dregur í sig 50 % meiri raka heldur en bómull
Hvernig er efnið búið til?
Eucalyptus trén vaxa
Uppskera
Viðurinn er mulinn (pulped)
Þræðir verða til
Ofið í efni
-
Eucalyptus er harðgerður og endurnýjanlegur, hann er ræktaður án þess að nota erfðafræðilega meðhöndlun, áveitu eða skordýraeitur.
-
Þegar trén ná um 40 metra hæð er uppskera. Þau eru skorin/höggin frekar en tekin upp með rótum, svo þau vaxi fljótt aftur.
-
Viðurinn er svo unnin í flísar sem eru svo mulnar og þurrkuð í blöð, tilbúin til vinnslu. Blöðin eru síðan brotin og leyst upp í eiturefnalausri amin oxide lausn. Tær, seigfljótandi vökvi er útkoman. Notað er lokað hrigrásarferli þar sem allt að 99% af efninu er endurunnið í sífellu, sem lágmarkar áhrif á umhverfið og varðveitir orku og vatn.
-
Langar Tencel™ trefjar eru framleiddar með því að þvinga þessari lausn í gegnum spunadælur með örsmáum götum, svolítið eins og sturtuhaus. Löngu þræðirnir eru síðan lagðir, þvegnir, þurrkaðir og flækjur fjarlægðar.
-
Því næst eru þeir þjappaðir með því að nota pressu til að bæta við massa og áferð. Þræðirnir eru síðan tilbúnir til að spinna þá í mjúkt, létt Tencel™ efni sem andar vel.
Hvers vegna við elskum Tencel™
Vegna sjálfbæra framleiðsluferlis þess, frá grunni til efnis. Það er notar litla orku og vatnsnotkun. Það er algjör lúxus að handfjatla það og ganga í því.
Modal er sjálfbært viscose efni framleitt af austurríska fyrirtækinu, Lenzing AG™. Það unnið úr beykitrjám, endurnýjanlegri náttúruauðlind.
Staðreyndir
LENZING™ rækta beykitré í sjálfbærum, evrópskum, PEFC-vottuðum skógum
10-20 falt minni vatnsnotkun en bómull
95% af úrgangi úr framleiðslunni er endurnýttur og endurunninn
Efnið dregur í sig 50% meiri raka en bómull
Hvernig er efnið búið til?
Beykitrén vaxa
Uppskera
Viðurinn er mulinn (pulped)
Þræðir verða til
Ofið í efni
-
Beykitré vaxa náttúrulega í Austurríki, þar sem Lenzing™ hefur aðsetur. Þau eru sjálfbær uppspretta hráefnis og fjölga sér með endurnýjun, sem þýðir að þau endursá sig sjálf.
-
Öll framleiðslukeðjan fyrir Modal notar Edelweiss tækni. Þetta er samlífisferli þar sem mulningurinn (the pulp) er unninn á sama stað og Modal þræðirnir.
-
Þegar tréð hefur þroskast er viðurinn högginn og spónarnir brotnir niður í mulning. Langir þræðir eru svo búnir til með því að þvinga þessum mulningi í gegnum spunadælur með örsmáum götum, svolítið eins og sturtuhaus.
-
Langir þræðirnir eru svo lagðir í bleyti í sulfuric acid, þvegnir og þurrkaðir. Þræðirnir eru síðan settir á kefli.
-
Þeir eru síðan tilbúnir til að spinna í mjúkt, létt Modal efni sem andar.